(in english below)
Áskorun nær 50.000 Íslendinga um endurheimt orkuauðlindanna verður afhent stjórnvöldum undir keðjusöng sem hefst fyrir utan Stjórnarráðið á mánudag klukkan tíu !
Mánudaginn 17. janúar, 2011 klukkan tíu að morgni, áður en þing er sett, eru aðstandendur undirskriftasöfnunar á vefnumorkuaudlindir.is boðaðir til fundar við forsvarsmenn Ríkisstjórnar Íslands til að ræða um áskorun til stjórnvalda um að vinda ofan af einkavæðingu helstu orkufyrirtækja landsins og að láta hið bráðasta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald og nýtingu orkuauðlindanna.
Aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar munu þá afhenda stjórnvöldum nær fimmtíu þúsund undirskriftir sem safnast hafa og biðja nú alla sem bera hag lands og þjóðar fyrir brjósti, og geta fengið sig lausa klukkan tíu á mánudagsmorgni, að mæta fyrir framan Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu og láta rödd sína hljóma.
Syngjum stjórnvöldum áskorun með keðjusöng sem berst um land allt!
Sá ég spóa suður´ í flóa,
Syngur lóa út´í móa:
,,Bí, bí, bí, bí.”
Vorið er komið víst á ný.
Með von um samstillingu !
http://www.orkuaudlindir.is/
We'll troll the petition to the government !
Monday 17th of January at 10:00 the Icelandic Government has invited the initiators of the petition at orkuaudlindir.is to a meeting at the Government Offices in Lækjargata (it's Stjórnarráðið, the old house across the main square, with statues in front).
The initiators now kindly ask everyone that agrees upon the petition lines: -that people in Iceland should get their energy resources back- to meet in front of this Stjórnarráð-house -if possible to get away from work at this time- and sing with us: We'll troll the petition to the Government ! The song is simple: Sá ég spóa...(I did see a Whimbrel!) and ends with an alarming bird-noise: Bí, bí, bí, bí... to remind of the spring ! This song will be sung in a troll/in a round; one takes up the tune from another, so the song will continue around the country!
www.orkuaudlindir.is